Ljónshjarta eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Þau voru stofnuð 28. nóvember 2013. Markmið Ljónshjarta er að styðja við bakið á yngra fólki eftir makamissi og vera vettvangur þar sem fólk getur hjálpað hvert öðru í sorg.
Starfið felst meðal annars í að halda úti heimasíðu með ýmis konar fræðsluefni og efna til samverustunda þar sem fullorðnir, unglingar og yngri börn hittast og eiga góða stund saman. Ljónshjarta eru með lokaðan hóp á Facebook fyrir þá sem hafa misst maka.
Netfang: ljonshjarta@ljonshjarta.is
Vefsíða: https://www.ljonshjarta.is/is
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið