Sjúkrahúsið Vogur hefur annað eftirspurn fyrir ungmenni undir 20 ára aldri, þau fara ekki á biðlista. Ungmenni fá oftast innlögn á sjúkrahúsið Vog innan 10 daga, innlögn er 10 dagar eða styttri eftir aðstæðum. Einstaklingur getur yfirgefið ungmennadeildina ef hann óskar og er þá alltaf haft samráð við vakthafandi lækni og forráðamenn eða aðstandendur. Fjölskylduviðtal er fyrir útskrift hjá þeim sem er ólögráða.
Sími: 530 7600
Netfang: saa@saa.is
Vefsíða: https://www.saa.is/is/medferd-til-betra-lifs/fyrstu-skrefin/ungmennamedferd
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið