Leiðbeiningar og ráðleggingar fyrir þolendur kynferðisofbeldis: hringið í 1700 utan dagvinnutíma til að fá samband við lækni/hjúkrunarfræðing á heilsugæslu, hringið í 112 fyrir neyðartilfelli auk þess sem Netspjall 112 er alltaf opið. Hægt er að eiga nafnlaust netspjall ef ekki er óskað eftir neyðarþjónustu á staðinn.
Sérstök neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis er opin allan sólarhringinn á Landspítala. Bráðamóttaka á Selfossi er opin allan sólarhringinn en þar er hægt að fá aðstoð og ráðleggingar. Bráðaþjónusta er í Vestmannaeyjum allan sólarhringinn þar sem hægt er að fá aðstoð og ráðleggingar.
Á heilsugæslustöðvum í heimabyggð er hægt að fá aðstoð og ráðleggingar á opnunartíma. Hjálparsími 112 og vaktsími 1700 beina brotaþola utan dagvinnutíma til vakthafandi læknis/hjúkrunarfræðings á starfsstöðvum HSU sem aðstoðar við viðeigandi ráðstafanir hverju sinni
Sími: 432 2000
Netfang: hsu@hsu.is
Vefsíða: https://island.is/s/hsu/tholendur-kynferdisofbeldis-hsu