Meðferð á Vík tekur við eftir að afeitrun á Vogi er lokið og lágmarksjafnvægi er náð. Þar er boðið upp á sérhæfð meðferðarúrræði, hvert þeirra er í 28 daga og felur í sér fyrirlestra,hópmeðferðir, verkefnatíma, ásamt einstaklingsviðtöl.
Meðferðarúrræðin eru kynjaskipt og í þeim öllum er áhersla lögð á dagskipulag með hreyfingu, reglu í matmálstímum og svefni, samveru og stuðningi. Þar er unnið eftir áfallamiðaðri nálgun og stuðst við verkefnabækur.
Á Vík gefst tími og næði til að kenna leiðir til að fást við fíkn, bæta úrlausnargetu, og stuðla að betri félagslegum samskiptum. Fræðsla (psychosocial education), hópmeðferð, og jafningja-verkefnavinna eru gagnreyndar leiðir til að stuðla að breytingum. Þar er sólarhringsvakt og kemur heilbrigðisstarfsfólk SÁÁ að meðferðinni í þverfaglegu teymi; læknar, sálfræðingar og áfengis- og vímuefnaráðgjafar, sem bera uppi meðferðina frá degi til dags.
Vefsíða: https://www.saa.is/is/medferd-til-betra-lifs/medferdastadir/medferdarstodin-vik
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið