Vinaverkefni Rauða krossins

Félagsleg verkefni Rauða krossins á Íslandi miða að því að styrkja og efla félagslega þátttöku einstaklinga og hópa. Unnið er út frá þörfum gestgjafa (notenda) hverju sinni og reynt að mæta óskum eins og kostur er. Því eru útfærslur fjölbreyttar og er þátttaka t.d. í formi heimsókna, göngu- eða ökuferða og símtala.

Félagsleg tengsl hafa mikið að segja þegar kemur að heilsu og vellíðan. Sjálfboðaliðar í félagslegu verkefnunum okkar sinna fjölbreyttum störfum. Sum hittast á heimili gestgjafa, á kaffihúsi og önnur fara saman í gönguferðir. Allt eftir því hvað hentar hverju og einu.

Hlutverk sjálfboðaliða er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Sjálfboðaliðar sækja undirbúningsnámskeið hjá Rauða krossinum og eru bundnir trúnaði við þau sem heimsótt eru. Sjálfboðaliðar hitta einstaklinga 1 sinni í viku í 12 mánuði í senn.

Sími: 570 4000

Netfang: vinaverkefni@redcross.is

Vefsíða: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/vinaverkefni/

Staðsetning: Fjarþjónusta

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram