FLIKK stendur fyrir „ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka“. FLIKK er rannsóknarverkefni sem metur árangur og ánægju af foreldramiðaðri kvíðameðferð sem veitt er með stafrænni heilbrigðislausn í gegnum internetið. Markmiðið er að valdefla foreldra í að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að gagnreyndri meðferð. Gögnum verður safnað í Háskólanum í Reykjavík (HR) í gegnum stafrænu heilbrigðislausnina FLIKK (e. digital platform).
Vefsíða: skraning.flikk.is
Netfang: flikksupport@ru.is