Hearing Voices Iceland eru landssamtök þeirra sem heyra raddir, sjá sýnir eða eiga aðrar óhefðbundnar upplifanir og áhugafólk um málefni þessa hóps.
Tilgangur félagsins er:
a) Að opna umræðu um mannréttindi einstaklinga sem heyra raddir, sjá sýnir og aðrar óhefðbundnar upplifanir.
b) Að vera til staðar fyrir einstaklinga sem heyra raddir og stuðningsnet þeirra.
c) Að fræða samfélagið um þýðingu radda og annarra óhefðbundinna upplifana til að uppræta fordóma.
d) Að stuðla að bættu geðheilbrigðiskerfi sem veitir uppbyggjandi þjónustu til einstaklinga sem heyra raddir.
e) Að þróa gagnlegar aðferðir sem byggja á virðingu og styðja einstaklinga sem heyra raddir til að takast á við erfiðar upplifanir af röddum.
Félagsaðild: Sérhver einstaklingur sem er reiðubúinn til að starfa eftir tilgangi og markmiðum félagsins getur orðið félagi í Hearing Voices Iceland. Félagsaðild stendur þeim til boða sem eru orðin 18 ára eða eldri.
Persónuupplýsingar félaga Hearing Voices Iceland eru aðgengilegar stjórn samtakanna. Farið er með þær sem trúnaðarmál. Stjórn Hearing Voices Iceland mynda Fanney Björk Ingólfsdóttir formaður, Grétar Björnsson, Anna Lind Jónsdóttir, Ólafía Daníelsdóttir og Guðjón Oddur Helenuson.