Meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) eru fyrir börn á aldrinum 12-18 ára sem glíma við vímuefnavanda, alvarlegan hegðunarvanda og afbrotahegðun. Oft hafa minna íþyngjandi úrræði eins og MST verið reynd áður en gripið er til vistunar á meðferðarheimili.
Meðferðarheimili BOFS eru sérhæfð meðferðarúrræði með sólarhrings umsjón í heimilislegu umhverfi. Meðferðin er fagleg og einstaklingsmiðuð, með það að markmiði að draga úr áhættuþáttum og byggja upp verndandi þætti. Meðferðarheimilin skiptast í Grunnmeðferð, Framhaldsmeðferð, Stuðningsheimili og Neyðarvistun.
Vefsíða: https://island.is/s/bofs/medferdarheimili
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið