Sálfræðiþjónusta barna er fyrir börn á aldrinum 8-18 ára sem eiga foreldra eða aðra nána aðstandendur með fíknivanda, en viðtölin fara fram í Von, Efstaleiti 7, í Reykjavík.
Boðið er upp á fjarviðtöl fyrir þau börn sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Í fyrsta viðtali hittir barn sálfræðing á staðnum (Göngudeild SÁÁ í Reykjavík eða á Akureyri) og í kjölfarið fara viðtölin fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Foreldrar geta fengið ráðgjöf í viðtali ef barn hefur ekki möguleika á að sækja viðtöl sjálft eða er ekki tilbúið til þess. Einnig geta foreldrar óskað eftir viðtali á meðan barn er í þjónustu.
Sími: 530 7600
Vefsíða: https://www.saa.is/is/thjonusta-vid-fjolskyldur/salfraedithjonusta-barna
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið