Akureyrarbær veitir þeim sem þess þurfa víðtæka félagslega þjónustu og aðstoð. Markmið félagslegrar aðstoðar er að styðja einstaklinga og fjölskyldur í tímabundnum erfiðleikum og stefna að því að viðkomandi verði sjálfbjarga til lengri tíma. Þessi stuðningur felur meðal annars í sér félagslega ráðgjöf og fjölbreytt úrræði.
Nágrannasveitarfélögin Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur og Svalbarðsstrandarhreppur hafa gert samninga við Akureyrarbæ um ráðgjafarþjónustu.
Sími: 460 1000
Netfang: akureyri@akureyri.is
Vefsíða: https://www.akureyri.is/velferd-og-samfelag/velferdarthjonusta
Staðsetning: Norðurland