Fjölbreytt starfsemi í þágu áfengis- og vímuefnasjúklinga og fjölskyldna þeirra fer fram á göngudeild SÁÁ í Reykjavík í Von, Efstaleiti 7.
Hluti áfengis- og vímuefnasjúklinga kemur á göngudeildina til að leita ráðlegginga og greiningar á vanda sínum. Ef niðurstaða greiningarviðtals gefur tilefni til er viðkomandi lagður inn á sjúkrahúsið Vog við fyrsta tækifæri og þá hefst hefðbundin áfengis- og vímuefnameðferð. Oft er hins vegar hægt að leysa vanda fólk án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma.
Viðtalsþjónusta við ráðgjafa á göngudeild er veitt alla virka daga, bæði fyrir fólk með fíknsjúkdóm og aðstandendur frá 8 til 16 mánudaga til fimmtudaga og frá 8-12 á föstudögum. Hægt er að sækja dagmeðferð á göngudeild í Reykjavík. Dagmeðferð hentar þeim sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu, búa við góðar félagslegar aðstæður og góða líkamlega heilsu.
Sími: 530 7600
Netfang: saa@saa.is