Meðferð við spilafíkn er í Von, Efstaleiti 7, á fimmtudögum kl 16:00 stuðningshópur er kl 17:00. Um er að ræða fyrirlestra og hópfundi. Markmið meðferðarinnar er að auka skilning þátttakenda á spilafíkn og stuðla að bata. Meðferðin er opin öllum sem telja hana eiga erindi við sig og ókeypis. Meðferðin er gjaldfrjáls.
SÁÁ býður meðferð, ráðgjafaviðtöl og stuðningshópa fyrir þá sem glíma við vanda vegna fjárhættuspils og spilafíknar. Aðstandendur geta einnig sótt ráðgjöf og fræðslu á göngudeildum SÁÁ.
Allir sem telja sig hafa vanda vegna fjárhættuspils eiga kost á einkaviðtali við ráðgjafa á göngudeild SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík eða Hvannavöllum 14 á Akureyri. Hver sem er getur pantað þar viðtalstíma í síma 530-7600. Í slíku viðtali er hægt að meta stöðuna og fólk getur haft samráð við fagmann um hvort og hvernig hægt er að glíma við vandann. Engar skuldbindingar fylgja því að fara í slíkt viðtal.
Sími: 530 7600
Netfang: spilavandi@saa.is
Vefsíða: https://www.saa.is/is/medferd-til-betra-lifs/fyrstu-skrefin/medferd-vid-spilafikn
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið