Sálfræðingar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sinna meðferð barna og ungmenna að 18 ára aldri, skjólstæðingum geðheilsuteymis auk samstarfs við ung- og smábarnavernd sem og mæðravernd.
Læknar heilsugæslu vísa til sálfræðinga innan stöðvar og er því fyrsta skrefið að bóka tíma hjá lækni. Sálfræðingar hafa viðveru á flestum heilsugæslustöðvum og reyna eftir fremsta megni að mæta fólki á stöðvum í þeirra nágrenni. Sérfræðiþjónusta skóla, barnavernd og námsráðgjafar framhaldsskóla geta einnig vísað í þjónustuna.
Sími: 432 2000
Netfang: hsu@hsu.is
Vefsíða: https://island.is/s/hsu/salfraedithjonusta-hsu
Staðsetning: Suðurland