Á sálstofunni er unnið með börnum, ungmennum, fjölskyldum þeirra og nánasta umhverfi. Þar er sinnt ráðgjöf, meðferð og greiningum vegna tilfinningavanda, hegðunarvanda, taugaþroskaraskana og sértæks vanda tengdum aðstæðum og daglegu lífi. Má þar nefna ADHD, kvíða, depurð, einhverfu, áráttu og þráhyggju, svefnvanda, áföll, sorg, skólaforðun, sjálfskaða og reiði. Áhersla er lögð á þjálfun færni eins og lausn vanda, félagsfærni, sjálfstyrkingu, tilfinningalæsi og -stjórnun.
Netfang: ritari@salstofan.is
Vefsíða: salstofan.is
Sími: 519-2211