Þúfan er áfangaheimili fyrir konur sem lokið hafa meðferð vegna fíknar í áfengi og/eða önnur vímuefni. Heimilið er rekið af almannaheillafélaginu Lítilli þúfu.
Tíu konur geta dvalið á heimilinu hverju sinni en í húsinu er aðstaða fyrir börn kvennanna. Konurnar koma að eigin ósk á heimilið með það að markmiði að einbeita sér að breyttum lifnaðarháttum. Miðað er við að hver kona dvelji að minnsta kosti þrjá mánuði á heimilinu.
Netfang: litilthufa@gmail.com
Vefsíða: www.thufan.is