Hluti áfengis- og vímuefnasjúklinga kemur á göngudeildina til að leita ráðlegginga og greiningar á vanda sínum. Ef niðurstaða greiningarviðtals gefur tilefni til er viðkomandi lagður inn á sjúkrahúsið Vog í Reykjavík við fyrsta tækifæri og þá hefst hefðbundin áfengis- og vímuefnameðferð. Oft er hins vegar hægt að leysa vanda fólk án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma.
Flestir sjúklingar koma á göngudeildina að lokinni dvöl á Vogi eða að lokinni meðferð á Vík. Aðstandendur og fjölskyldur fólks með fíknivanda geta einnig sótt margvíslega aðstoð og þjónustu á göngudeildina, sem og fólk með spilavanda. Reglulega er boðið upp á námskeið fyrir aðstandendur fólks með fíknisjúkdóm og eru þau auglýst sérstaklega á svæðinu.
Sími: 530 7600
Símanúmer deildarinnar: 462 7611, 824 7609
Netföng: saa@saa.is
Vefsíða: https://www.saa.is/is/medferd-til-betra-lifs/fyrstu-skrefin/gongudeild-saa-a-akureyri
Staðsetning: Norðurland