Andrúm – Geðræktarmiðstöð Austurlands

Andrúm – Geðræktarmiðstöð Austurlands er lágþröskulda geðræktar- og virkniúrræði staðsett á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Andrúm er opið fyrir öll, 18 ára og eldri, sem vilja efla félagsleg tengsl, auka virkni og vinna að bættri líðan. Starfsemin byggir á batamiðaðri hugmyndafræði, valdeflingu og jafningjastuðningi.

Andrúm er opið alla virka daga á milli 13:00 og 16:00 og þar má mæta í opið hús eða taka þátt í fjölbreyttri dagskrá án kröfu um tilvísanir eða skuldbindingu. í Andrúm eru starfandi iðjuþjálfi/verkefnastjóri og jafningjafulltrúi en þátttakendur taka virkan þátt í að móta og halda úti starfseminni.

Hlutverk Andrúm er að vera viðbót við geðheilbrigðis- og félagslega þjónustu á Austurlandi og taka virkan þátt í því að vinna gegn alvarlegum afleiðingum andlegra áskorana og einangrunar með því að veita aðgengilega þjónustu á jafningjagrundvelli.

Andrúm er opið á Fjárhúsunum Fellabæ á mánudögum frá kl. 13 til 16:00, á Egilsstöðum á þriðjudögum og fimmtudögum í húsnæði StarfA Miðvangi 1, 2. hæð frá kl. 13 til 16 og á Reyðarfirði í Melgerði 13 á miðvikudögum og föstudögum frá kl. 13 til 16.

Símanúmer: 832-6839

Netfang: aldis@starfa.is

Vefsíða: facebook.com/profile.php?id=61581749678336

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram