Vernd hefur starfað að málefnum dómþola í 60 ár og hefur Vernd það í stefnu sinni að bæta félagslega hæfni þeirra og bæta viðhorf almennings og yfirvalda til þeirra sem dæmdir eru. Ætla má að fjöldi þeirra sem búið hafi á Vernd séu hátt í fimm þúsund á þessum tíma.
Vernd hefur á skipa meðferðar og endurhæfingastefnu þar sem dómþolum stendur til boða að taka út hluta óskilorðsbundinna dóma í fullnustu utan fangelsa í allt að 24 mánuði. Vernd hefur verið brautryðjandi hvað þetta varðar og hefur samstarf Verndar og fangelsismálastofnunnar verið farsælt. Vernd er alltaf að leita nýrra leiða til að styrkja félagslega og samfélagslega hæfni þeirra sem þar dvelja á hverjum tíma.
Vernd hefur staðið vörð um velferð fólks í þessari stöðu í rúm 60 ár og reynt að milda viðhorf almennings til málaflokksins. Vernd hefur staðið vörð um nauðsyn þess að dómþolar sem ekki sitja í fangelsum fái eðlilegan og óhindraðan aðgang að réttindum svo sem heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu sveitafélaganna, Tryggingastofnunnar og lögfræðiaðstoð. Vernd hefur stutt við bakið þessum hóp, sem stendur mjög höllum fæti og er á viðkvæmum stað í lífi sínu þegar hann sækist eftir þjónustu Verndar.
Sími: 562 3003
Netfang: vernd@vernd.is
Vefsíða: https://www.vernd.is