Hlutverkasetur er opin virknimiðstöð. Það þýðir að enga tilvísun þarf, bara löngun að viðhalda virkni og eiga samleið með öðrum. Þátttakendur geta tekið þátt í skipulagðri starfsemi eins og myndlist, hreyfingu, jafningastuðningi eða fræðslu. Hvern og einn hannar sína dagskrá.
Meirihluti starfsfólks hefur á einhverjum tímapunkti misst taktinn í lífinu og þurft mismikið á velferðarkefinu að halda. Sumir nýta staðinn sem hluta af sinni endurhæfingu, eða eru að undirbúa sig undir hana, eða hafa lokið henni. Fyrir marga er mikilvægt að viðhalda árangri, forðast einangrun, viðhalda lífsgæðum og láta gott af sér leiða.
Markmiðin eru því ólík, sumir stefna á atvinnumarkaðinn, fara í nám eða þurfa stað til að viðhalda rútínu. Leiðarljós Hlutverkaseturs er virk samfélagsþátttaka, að sinna hlutverkum sem gefa lífinu gildi, jákvætt og styðjandi umhverfi og mikilvægi þess að sjá það spaugilega í lífsins ólgu sjó.
Sími: 695 9285
Netfang: hlutverkasetur@hlutverkasetur.is
Vefsíða: http://www.hlutverkasetur.is
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið