Endurhæfingarhúsið Hver er ætlað þeim sem tapað hafa hlutverkum í lífinu vegna veikinda, sjúkdóma, slysa, áfalla eða annarra þátta sem koma í veg fyrir þátttöku í samfélaginu. Hver er með þrjár þjónustuleiðir Athvarfshluta, Grunnendurhæfingu og Markvissa atvinnuleit:
Athvarfshlutinn er öllum opinn og þar hafa einstaklingar ekki skyldumætingu en geta tekið þátt í námskeiðum og hópum sem þeir skuldbinda sig til að mæta í. Allir sem koma fá viðtal þar farið er yfir það sem í boði er að sækja og markmið með því að mæta er sett í samvinnu við starfsmann.
Grunnendurhæfing er fyrir þá sem stefna á vinnumarkað með einhverjum hætti. Einstaklingar í grunnendurhæfingu fá tenglið sem heldur utan um endurhæfingarferlið í samvinnu við einstaklinginn sjálfan og fagaðila sem koma að málum á endurhæfingartímanum. Einstaklingar sem fara á endurhæfingarlífeyrisgreiðslur skuldbinda sig til að fylgja áætlun í endurhæfingunni. Mætingarskylda er í endurhæfingardagskrá.
Markviss atvinnuleit er samstarfsverkefni við Vinnumálastofnun á Vesturlandi sem jafnframt vísar atvinnuleitendum í þjónustu Hver.
Sími: 431 2040
Netfang: thelma@akraneskaupstadur.is
Vefsíða: https://www.akranes.is/thjonusta/velferd-og-fjolskylda/hver
Staðsetning: Vesturland