Stjórn og starfsfólk Geðhjálpar

Stjórn Geðhjálpar var kosin á aðalfundi í mars 2025

Aðalstjórn

Svava Arnardóttir formaður

Svava Arnardóttir er iðjuþjálfi og manneskja með persónulega reynslu af andlegum áskorunum. Hún hefur talað fyrir breyttri nálgun og áherslum í geðheilbrigðiskerfinu sem og samfélaginu í heild. Ýmislegt hefur áunnist í framþróun síðastliðinna ára þó enn sé langt í land með að hlustað sé á sérfræðiþekkingu einstaklingsins á eigin lífi, rými sé gefið til að […]

Sigmar Þór Ármannsson gjaldkeri

Sigmar Þór starfaði sem forstöðumaður yfir færanlegu búsetuteymi hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar en færði sig yfir í mannauðsteymi velferðarsviðs og kemur þar m.a. að stuðningi við stjórnendur þvert á svið sem starfa í málefnum barna og fjölskyldna, fatlaðs fólks og virknimálum. Sigmar Þór hefur því víðtæka reynslu af þverfaglegum samskiptum við stofnanir, s.s. Landspítalann og geðheilsuteymin, […]

Jón Ari Arason

Jón Ari Arason hefur um langt árabil, með hléum þó, verið áhugamaður um geðrækt, geðvernd, og geðheilbrigði almennt, og starfað á því sviði bæði sem sjálfboðaliði innan ýmissa félagasamtaka og starfsmaður hjá Hlutverkasetri og á geðsviði Landspítalans. Jafnframt hefur hann persónulega reynslu af því að veikjast á geði og að ná bata. Jón Ari var […]

Sigurborg Sveinsdóttir

Sigurborg Sveinsdóttir er iðjuþjálfi að mennt, sem hefur síðastliðin 10 ár unnið að hagsmunamálum notenda í grasrótinni og innan geðheilbrigðiskerfisins. Hún býr sjálf yfir persónulegri reynslu af andlegum áskorunum og af því að vera í aðstandenda hlutverki. Undanfarin misseri hefur Sigurborg starfað við jafningjastuðning (IPS, intentional Peer support) og er einnig með IPS þjálfararéttindi. Hún […]

Birgir Páll Hjartarson

Birgir er 55 ára en hefur verið í vandræðum með sálina frá táningsaldri. Hann hefur unnið þó nokkuð að geðheilbrigðismálum í gegnum tíðina, t.d. með því að starfa með hópum og félagasamtökum, rita greinar og koma fram í fjölmiðlum og með því að taka þátt í ráðstefnuhaldi og halda ýmsa fyrirlestra um geðheilbrigðismál. Birgir hefur […]

Hallgrímur Hrafnsson

Hallgrímur Hrafnsson starfar sem jafningi í geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítalans. Hann býr yfir eigin reynslu sem notandi geðþjónustu síðan 1998 og hefur séð ýmsar góðar breytingar í geðþjónustu síðan þá en tækifærin til bóta eru enn mörg og brýn. Hallgrímur er virkur þátttakandi í samfélagi jafningja, en hann hefur oft séð hve öflug sú nálgun […]

Bergþór Grétar Böðvarsson

Bergþór Grétar Böðvarsson hefur víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum, fyrst sem notandi kerfisins eftir að hafa greinst með geðsjúkdóm (eins og það var kallað á þeim tíma), síðan aðstandandi manneskju með geðsjúkdóm og svo sem notandi í úrræðum á borð við Klúbbinn Geysi, Hugarafl og Hlutverkasetur. Síðustu ár hefur Bergþór starfað á geðsviði LSH og í […]

Varastjórn

Sigrún Sigurðardóttir

Sigrún Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Ísafirði. Hún hefur m.a. starfað sem lögregluþjónn, hjúkrunarfræðingur, aðstoðarrektor við Kvikmyndaskóla Íslands og sem jógakennari. Síðustu ár hefur hún starfað sem dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Sigrún er með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði og fjalla rannsóknir hennar um áhrif ofbeldis í æsku á líf og heilsu á fullorðinsárum. […]

Ari Hróðmarsson

Ari Hróðmarsson er menntaður tónlistarmaður með B.Mus-gráðu frá CvA í Amsterdam og M.Mus-gráðu frá Listaháskóla Íslands, auk frekara náms á Spáni og í Þýskalandi. Hann hefur starfað sem sjálfstæður básúnuleikari og hljómsveitarstjórnandi og kennt fræðigreinar við Listaháskóla Íslands og Tónskóla Sigursveins. Ari greindist með geðhvörf árið 2016 og hefur síðan unnið markvisst að því að […]

Starfsfólk

Grímur Atlason framkvæmdastjóri

Grímur Atlason tók við starfi framkvæmdastjóra Geðhjálpar í septemberbyrjun 2019. Hann er menntaður þroskaþjálfi og með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Grímur hefur víðfeðma reynslu úr atvinnulífinu bæði innan opinbera- og einkageirans. Hann starfaði sem þroskaþjálfi á Íslandi og í Danmörku, rak umboðsskrifstofu fyrir tónlistarfólk og stýrði hundruðum viðburða. Hann var bæjarstjóri Bolungarvíkur og sveitarstjóri í […]

Helga Arnadóttir, MSc í félags- og heilsusálfræði

Helga er með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, Master of Science gráðu í félags- og heilsusálfræði frá Maastricht University og diplomagráðu á mastersstigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Einnig hefur hún fengið þjálfun í ráðgjöf á forsendum jákvæðrar sálfræði (positive psychology coaching) við Maastricht University, Endurmenntun Háskóla Íslands og við Wholebeing […]

Guðný Guðmundsdóttir verkefnastjóri

Guðný Guðmundsdóttir starfar sem verkefnastjóri hjá Geðhjálp. Guðný starfaði áður í vefteymi á markaðssviði Marel, auk þess sem hún var ritstjóri samfélagsmiðladeildar hjá PIPAR/TBWA auglýsingastofu. Hún er með BA-gráðu í ensku og MA-gráðu í hagnýtri ritstjórn frá Háskóla Íslands, sem og MA-gráðu í útgáfu frá Anglia Ruskin University í Cambridge, Englandi. Guðný hefur lengi vel […]

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram